Andri Valur Ívarsson heiti ég og er 30 ára gamall. Ég stunda nám í hagfræði og lögfræði við HÍ. Ef allt gengur að óskum útskrifast ég sem hagfræðingur í febrúar 2011.
Ég bjó á Húsavík fram til 25 ára aldurs og er stúdent frá framhaldsskólanum þar. Þá spilaði ég knattspyrnu með Völsungi uns ég flutti í borgina. Þá gerði ég samning við Val. Spilaði lítið þar og fór m.a. sem lánsmaður til KFF og spilaði með Fjarðabyggðarliðinu eitt sumar. Því næst spilaði ég tvö sumur í efstu deildinni með Fjölni. Síðasta sumar spilaði ég svo á heimaslóðum með Völsungi.
Í gegnum tíðina hef ég starfað víða og í fjölbreyttu um hverfi. Ég hef starfað til skamms tíma sem pípari, sem viðhaldsmaður í kjötvinnslu og sláturhúsi, sem málari, starfaði lengi í Rækjuvinnslu Húsavíkur á sumrin og með námi í ýmsum störfum, var umsjónarmaður á knattspyrnuvellinum á Húsavík eitt sumar, aðstoðaði í bakaríinu á Húsavík þar sem ég öðlaðist ómetanlega reynslu í djúpsteikingum og flatbrauðs-gerð. Eftir að ég fluttist í borgina hef ég starfað sem blaðamaður á Fréttablaðinu og sem tæknimaður hjá Vodafone þar sem ég starfa í dag með námi.Auk þessa þá bjó ég um skeið í Antigua í Gvatemala í Mið Ameríku. Þar stundaði ég spænskunám og vann síðar sem sjálfboðaliði á sjúkrabíl.